Dáleiðsla FullkomnunaráráttaStreitaKvíði / ÞunglyndiHætta að reykjaVefjagigtBreytt mataræði og hreyfingAukið sjálfstraustMeðvirkniÍþróttir og sviðslistir Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð Hætta að reykja Sjálfstyrkingarnámskeið Um mig Söngkennsla Tónlistarviðburðir Blogg um dáleiðslu Reynslusögur af dáleiðslu S: 698-7807 Bóka tíma

Söngkennsla

Söngnámskeiðin hefjast aftur í september. Þú getur skráð þig núna

5 skipti Söngnámskeiðin eru í 5 skipti þar sem hver tími er í 40 mín. Mætt er 1x í viku. Oftast er um fasta tíma að ræða og eru tímarnir 5 teknir á 5-6 vikum.
Stakur tími Viltu vera viss? Vertu velkomin í stakan tíma.
4 tímar Viltu koma í söngtíma þegar þú hefur tíma? Hægt er að kaupa 4 tíma sem gilda í 2 mánuði. Þá eru tímarnir í 50 mín og þú bókar með stuttum fyrirvara.

Farið er í líkamsbeitingu, öndun, túlkun, sjálfstyrkingu og sönglög og við höfum gaman.

Eftir námskeiðið er hægt að sækja framhaldsnámskeið. Kennsla fer fram í góðu 22 fm rými í 102 Reykjavík.

Tónlistarviðburðir

Aðeins um tónlistarferilinn

Hólmfríður Jóhannesdóttir byrjaði ung í Söngskólanum í Reykjavík og var tónlistin líf hennar og yndi. Á sama tíma var hún í Menntaskólanum í Hamrahlíð en fljótlega kom í ljós að tónlistin var mikilvægari. Árin í MH voru skemmtileg og félagsskapurinn góður en þau urðu þó ekki mörg og eftir 8. stigs próf frá Söngskólanum í Reykjavík og útskriftartónleika í Íslensku óperunni hélt Hólmfríður til Vínar. Árin í Söngskólanum voru einfaldlega yndisleg og þegar horft er til baka voru þau líklega bestu árin í tónlistarnámi. Til stóð að Hólmfríður færi með góðri söngvinkonu til Vínar og ætluðu þær að leigja saman íbúð, en sú hætti við á síðustu stundu og fór Hólmfríður því ein út 24 ára. Árin í Vín urðu samtals 8 á tveimur tímabilum. Á fyrra tímabilinu lauk Hólmfríður einsöngvaraprófi frá Konservatorium í Vín og 5. stigi í píanóleik. Eftir einhver ár í Vín hélt Hólmfríður til Ítalíu í söngnám og ítölskunám. Fyrst í Mílanó og seinna í Siena. Ítalía var kærkomin breyting.

Árið 2002 lauk Hólmfríður kennaranámi frá Konunglega tónlistarháskólanum í Bretlandi og var um tíma söngkennari í Söngskólanum í Reykjavík.

Enn og aftur var haldið til Vínar og nú með ungum syni og var Hólmfríður þá starfandi í Austurríki og í Þýskalandi sem óperusöngkona á tæplega tveggja ára tímabili. Þetta byrjaði þó allt með tónleikum þar sem hún fékk starf hjá tónleikafyrirtæki sem skipulagði tónleika víðsvegar um Vín og söng Hólmfríður 2-3 tónleika á viku í einhverja mánuði áður en farið var að ferðast með óperunni. Til gamans má geta að Hólmfríður söng slétt 100 sýningar sem Hans úr óperunni Hans og Gréta eftir Humperdinck. Ferðalögin voru krefjandi og skemmtileg og félagsskapurinn oftast frábær og að fá tækifæri til að syngja svona reglulega var ekki sjálfsagt.

Hólmfríður fór að læra dáleiðslu hjá þekktustu dáleiðurum Bandaríkjanna og fljótlega eftir að hún kláraði grunnnám í meðferðardáleiðslu stofnaði hún Andlega Setrið og hefur starfað þar frá 2012 til dagsins í dag. Á þessum árum hefur Hólmfríður haldið sjálfstyrkingarnámskeið, söngnámskeið og gefið út tvær hljómplötur. Nú síðast 2022, hljómdiskinn Hjarta þitt ásamt Kjartani Valdemarssyni píanóleikara og hljómsveit.

Hólmfríður hefur haldið fjölda einsöngstónleika. Þeir síðustu voru í mars 2026 í Hannesarholti ásamt Ástríði Öldu Sigurðardóttur píanóleikara þar sem flutt voru ljóð eftir Jean Sibelius og Atla Heimi Sveinsson og í apríl 2025 þar sem flutt voru þekkt ljóð eftir Schubert og Brahms í Dómkirkjunni í Reykjavík.

Hringdu endilega í síma 698 7807 eða sendu tölvupóst á hj@daleidari.is ef tímar á bókunarvef henta ekki.

Bóka tíma